Fjölskylduhátíðin Ein með öllu og Íslensku sumarleikarnir hófust í dag og standa fram á sunnudagskvöld. Íbúar í bænum hafa líkt og áður verið hvattir til að skreyta í kringum sig með rauðum lit. Í boði á hátíðinni er stórglæsileg dagskrá jafnt fyrir unga sem aldna og munu fjölmargir listamenn taka þátt í að skemmta bæjarbúum og gestum. Einnig verða íþróttaviðburðir undir hatti Íslensku sumarleikanna, þar sem allur aldur fær að spreyta sig og það er mikið fagnaðarefni að viðburðurinnMömmur og möffins verður á ný í Lystigarðinum, á laugardaginn kl 16-18. Hápunkturinn er Sparitónleikarnir sem verða á Samkomuhúsflötinni á sunnudagskvöld.
Lokanir gatna vegna viðburða eru óumflýjanlegar á umfangsmikilli dagskrá sem þessari og má sjá þær á kortinu hér að neðan. Allar upplýsingar um dagskrá Einnar með öllu er að finna á heimasíðunni einmedollu.is og einnig er upplagt að fylgjast með á Facebook.
Mynd og frétt af akureyri.is
Sjá einnig:
,,Það er hugur í heimafólkinu“ – Rúnar Eff segir frá því helsta um helgina
UMMÆLI