KA goðsögnin, Andrius Stelmokas er um þessar mundir í heimsókn á Akureyri með fjölskyldu sinni. Stelmokas var algjör lykilmaður í liði KA á árunum 2000 til 2004 og vann meðal annars Íslandsmeistari með liðinu árið 2002 og Bikarmeistari tveimur árum seinna.
Margir fyrrum liðsfélagar hans í KA hittust ásamt fjölskyldum sínum á veitingastaðnum Bryggjunni og af myndum að dæma var ansi kátt á hjalla. Hér að neðan má sjá mynd af hópnum sem heimasíða KA birti í gær.
UMMÆLI