Sandra María Jessen leikmaður Þór/KA kom inn á í 2-0 sigri liðsins á Haukum í gær. Sandra sleit aftara krossband í landsleik í byrjun mars og var búist við því að hún yrði lengur frá. Óttast var jafnvel að Sandra myndi missa af EM í sumar en sjálf hafði hún trú á því að hún yrði mætt á völlinn aftur í byrjun júní.
Sjá einnig: Þór/KA halda sigurgöngunni áfram
Í samtali við Kaffið.is eftir leik segist Sandra vera gífurlega ánægð með að vera komin aftur á völlinn. „Það var hugsað vel um mig frá fyrsta degi meiðslanna og endurhæfingin gekk eins vel og hægt er.“
Sjá einnig: Sandra María stefnir á endurkomu í byrjun júní
Áhorfendur á Þórsvelli klöppuðu vel fyrir Söndru þegar hún kom inn á. Sandra var ánægð með sigur Þór/KA. „Það er alltaf gott að taka þrjú stig. Spilamennskan hefur oft verið betri en við erum með fullt hús stiga eftir 4 leiki, við getum ekki beðið um meira en það.“
Næsti leikur Þór/KA er á laugardag þegar þær heimsækja KR á Alvogen völlinn í Vesturbænum. KR eru á botninum með Haukum með 0 stig.
Sjá einnig:
UMMÆLI