Lið Síðuskóla sem sigraði Skólahreysti í apríl var í morgun heiðrað á sal skólans. Ólöf Inga Andrésdóttir skólastjóri Síðuskóla hældi keppendunum og stuðningsliði þeirra í hástert og las upp nokkrar vel valdar kveðjur sem bárust þegar úrslitin lágu fyrir.
Sjá einnig: Síðuskóli sigraði Skólahreysti og bætti íslandsmet
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri steig næst á svið og þakkaði liðinu fyrir frammistöðuna sem hann sagði vera öðrum hvatning á þessu sviði sem öðrum. Keppendur liðsins fengu svo að lokum áritaða bók með þakkarkveðju frá bæjarstjórn Akureyrar undirritaða af bæjarstjóra.
UMMÆLI