Pepsi deild kvenna hófst í Boganum í dag þegar stelpurnar í Þór/KA fengu Val í heimsókn. Miklar væntingar eru gerðar til þessara liða fyrir tímabilið og er þeim víðast hvar spáð í toppbaráttu. Samkvæmt spá Kaffið.is munu Valskonur standa uppi sem íslandsmeistarar í lok sumars en Þór/KA mun enda í 4. sætinu þriðja árið í röð.
Sjá einnig: Allt sem þú þarft að vita um Þór/KA fyrir sumarið
Í leiknum í dag voru það Þór/KA sem spiluðu eins og Íslandsmeistarar. Sandra Stephany Mayor Gutierrez skoraði fyrsta mark sumarsins eftir 9 mínútna leik. Þór/KA héldu yfirhöndinni út leikinn án þess að bæta við fleiri mörkum og 1-0 sigur varð staðreynd.
Sterkur sigur hjá Þór/KA sem fá Breiðablik í heimsókn í næstu umferð þann 2. maí.
UMMÆLI