Rekstrarniðurstaða Bæjarsjóðs Fjallabyggðar var jákvæð um 199 milljónir króna fyrir árið 2016. Þetta er þó 21 milljón minna en árið á undan, þar sem reksturinn var um 220 milljónir í plús.
Rekstrargjöld ársins 2016 námu 2.108 milljónum en voru 2.034 milljónir árið 2015. Þar munar mestu um hækkun launakostnaðar á milli ára um 96 milljónir. Annar rekstrarkostnaður lækkar hins vegar um 28 milljónir á milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjallabyggð til fjölmiðla.
„Ársreikningurinn sýnir að fjárhagsstaða Bæjarsjóðs er sterk og rekstur sveitarfélagsins í góðu lagi,” segir í tilkynningunni.
UMMÆLI