ÍBA greindi frá því á Facebook síðu sinni nú fyrir skemmstu að í ljósi umræðu undanfarinna daga um framtíð handknattleiksliðanna Akureyri Handboltafélags og KA/Þórs ætli liðin að fara í stefnumótunarvinnu ásamt ÍBA um framtíð handboltans á Akureyri.
Fram kemur að skýrt markmið vinnunnar sé að áfram verði sameiginleg lið KA og Þórs í meistaraflokki karla- og kvenna í handbolta.
UMMÆLI