Björgunarsveitin Súlur er að bæta við glæsilegum grip í bílaflota sinn samhliða kaupum björgunarsveitarinnar Ársæls á álíka bíl. Frá þessu greinir Morgunblaðið á vef sínum í dag.
Níu ár eru síðan Súlur bætti síðast nýjum bíl í flota sinn. Bíllinn er af tegundinni Mercedes Benz Sprinter, er upphækkaður og allur hinn glæsilegasti.
Í frétt mbl.is kemur fram að bíll Ársæls kosti um sjö milljónir. Kaupin á bílunum eru fjármögnuð með fjáröflun björgunarsveitanna, flugeldasölu og sölu á neyðarkallinum.
Smelltu hér til að sjá frétt mbl.is sem hefur að geyma myndband af bílunum tveim.
UMMÆLI