Logi Már Einarsson formaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi var gestur í þættinum Aðförin á Kjarninn.is í gær. Aðförin er hlaðvarpsþáttur um skipulagsmál.
Þar fór Logi yfir nýtt aðalskipulag sem skipulagsvöld Akureyrar lögðu fram á dögunum. Logi Már er arkitekt og hefur áralanga reynslu af skipulagsmálum Akureyrar.
Sjá einnig: 100-150 nýjar íbúðir á Akureyrarvöll
Kaffið.is hefur fjallað töluvert um nýtt aðalskipulag undanfarnar vikur en í því er lögð áhersla á þéttingu byggðar. Logi segir í Aðförinni að hann telji farsæla og skynsamlega þéttbýlismyndun gríðarlegt hagsmunamál í dag.
Hann segir að þó Akureyri sé lítill bær séu sömu vandamál uppi þar og í Reykjavík og enn stærri borgum varðandi samgöngur og þéttbýli. „Akureyri byggist upp í grunninn eins og evrópskur þéttur bær og við þurfum að ná því til baka. Ef Akureyri væri jafn þéttbyggð og meðal bær í Evrópu myndi hún öll rúmast fyrir á Eyrinni.“
Sjá einnig: Krossanes eftirsótt íbúðarsvæði
Logi talar meðal annars einnig um Glerárgötuna og hvernig hún hafi slitið Eyrina frá miðbænum á sínum tíma þegar henni var fjölgað í 4 akreinar, flugvöllinn í Vatnsmýri og áhrif sjónvarpsþáttaraðarinnar vinsælu Friends á viðhorf fólks til þéttbýlis.
Hægt er að hlusta á samtal Loga við umsjónarmenn Aðfarinnar Guðmund Kristján Jónsson, aðstoðarmann sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Magneu Guðmundsdóttir, varaformann umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar hér.
UMMÆLI