Fulltrúar frá Framhaldsskólanum á Húsavík skrifuðu í gær undir viljayfirlýsingu við fulltrúa allra hvalaskoðunar fyrirtækja á Húsavík og fulltrúa frá Þekkingarneti Þingeyinga um þátttöku í samstarfi sem hefur að markmiði að koma á fót námsmöguleika fyrir starfsfólk í hvalaskoðun.
Hundruðir þúsunda ferðamanna streyma til Húsavíkur á hverju ári og er hvalaskoðun helsta aðdráttarafl staðarins.
Námsúrræðið yrði sniðið sem valfag/fög sem yrði kennt samhliða stúdentsbrautum skólans. Einnig yrði boðið upp á sjálfstæða námsleið fyrir fullorðna.
Nemendur myndu þannig öðlast þá þekkingu á grunnþáttum sem hvalaskoðunarfyrirtækin sameinast um að séu nauðsynlegir. Náminu er ætlað að auka líkur á að heimafólk taki að sér störf við hvalaskoðun og þá sérstaklega ungmenni í leit að árstíðarbundnum störfum.
Í fréttatilkynningu segir að stefnt sé að þátttöku Ferðamálastofu í verkefninu. Leitað verður eftir viðurkenningu bæði samstarfsfyrirtækjanna og Ferðamálastofu á verkefninu.
UMMÆLI