Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins og oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi stakk upp á því á Facebook síðu sinni í dag að Donald Trump Bandaríkjaforseti og Vladimir Pútín Rússlands forseti hittist á Akureyri.
„Ég veit að Pútín og Trump njóta ekki fullkomlega almennrar hylli en þeir eru þrátt fyrir allt leiðtogar Bandaríkjanna og Rússlands. Færi ekki vel á því að þeir ræddu málin í góðu andrúmslofti í samvinnu- og norðurslóðabænum, Akureyri?“ segir í færslu Sigmundar.
Þetta segir hann í kjölfar frétta af því að forsetarnir munu hittast í Helsinki, höfuðborg Finnlands, í maí. Hann vill að Íslendingar bjóði Akureyri fram sem fundarstað. Hann segir að það gæti einnig aukið flæði ferðamanna til bæjarins.
„Það er hægt að fljúga beint á Akureyri frá Moskvu og Washington. Fyrst forsetarnir og svo ferðamennirnir sem fylgja í kjölfarið.“
UMMÆLI