Jón Birgir Guðmundsson útibússtjóri Íslandsbanka á Akureyri og Eiríkur Jóhannsson formaður knattspyrnudeildar KA skrifuðu í vikunni undir þriggja ára samstarfsamning milli Íslandsbanka og KA. Þetta kemur fram á heimasíðu KA.
Þar segir að knattspyrnudeildin sé þakklát fyrir stuðninginn frá Íslandsbanka á það öfluga starf sem er þar við lýði. Samningurinn muni styrkja stoðir knattspyrnudeildarinnar.
Sjá einnig: KA þrisvar í beinni í maímánuði
KA menn eru um þessar mundir í fullum undirbúningi fyrir þáttöku í Pepsi deild karla sem fer af stað 30.apríl næstkomandi. Fyrsti leikur KA manna verður 1. maí gegn Breiðablik.
UMMÆLI