Skautafélag Akureyrar er 0-2 undir í einvíginu gegn Esju í úrslitum um Íslandsmeistaratitil í íshokkí eftir 2-3 tap í Skautahöll Akureyrar í gærkvöldi.
Esja hafði yfirhöndina stærstan hluta leiksins en staðan að loknum fyrsta leikhluta var 1-2 fyrir gestunum. Andri Már Mikaelsson gerði eina mark annars leikhluta og breytti stöðunni í 2-2.
Eina mark þriðja leikhluta var skoruð af gestunum þegar Ólafur Hrafn Björnsson skoraði rúmum tíu mínútum fyrir leikslok.
Liðin mætast í Skautahöll Reykjavíkur á morgun, laugardag og geta Esjumenn tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri þar.
Markaskorarar SA: Jóhann Már Leifsson 1, Andri Már Mikaelsson 1.
Markaskorarar Esju: Ólafur Hrafn Björnsson 1, Egill Þormóðsson 1, Pétur Maack 1.
UMMÆLI