Íslenska kokkalandsliðið er nú í Þýskalandi að keppa á Ólympíuleikum í matreiðslu.
Mótið hófst þann 21.október en stendur fram til 26.október. Þá hefur liðið lokið keppni í köldu borði eða Culinary Art Table þar sem þau hlutu gullverðlaun fyrir eftirrétti en silfurverðlaun fyrir aðra rétti. Á kalda borðinu voru þau með rúmlega 30 rétti sem tók þau tvo sólahringa að búa til og stilla upp, en undirbúningur og æfingar fyrir mótið eru búnar að vera í fullum gangi síðastliðna 18 mánuði. Þá er liðið einnig búið að flytja með sér um 4 tonn af búnaði og hráefni fyrir keppnina, enda þurfti liðið að setja sér upp fullbúið eldhús á keppnisstað.
Nú hafa þau lokið fyrri hluta mótsins og þá er seinni hlutinn eftir, þ.e. heitur matur eða hot kitchen, þar sem þau þurfa að töfra fram þriggja rétta matseðil sem saman stendur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti fyrir 110 gesti.
Keppninni lýkur svo næstkomandi miðvikudag þegar úrslit allra keppna eru komin í ljós og hægt er að krýna einn heildarsigurvegara.
Á Ólympíuleikunum í ár eru um 2.000 matreiðslumenn frá rúmlega 40 þjóðum. Í landsliðinu okkar eru 16 kokkar með þjálfara og aðstoðarmönnum að auki. Við óskum landsliðinu góðs gengis með framhaldið og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn til þessa!
Myndir fengnar að láni af facebook síðu landsliðsins:
UMMÆLI