Brúin umdeilda við Drottningarbrautina er nú loks tilbúin og hefur Akureyrarbær efnt til verðlaunasamkeppni um nafn brúarinnar.
Dómnefnd mun fara yfir innsendar tillögur og velja nafnið.
Í verðlaun er vetrarkort í Hlíðarfjall, og kort í Sundlaug Akureyrar.
Þeir sem vilja taka þátt í samkeppninni geta sent tölvupóst á bru@akureyri.is.
Samkeppnin stendur til 15. júlí.
UMMÆLI