Veitingastaðir halda áfram að spretta upp eins og gorkúlur á Akureyri en eins og við höfum áður greint frá opna Lemon, Sushi Corner og Salatsjoppan á allra næstu vikum.
Nýjasti staðurinn í matarflóru Akureyrar er Aleppo kebab en það er Khattab Almohammad, flóttamaður frá Sýrlandi sem stendur að opnun staðarins.
Khattab segir í samtali við Kaffið að staðurinn opni í sumar en hann mun líklega verða staðsettur í Hafnarstræti 100.
UMMÆLI