Veitingastaðurinn Aleppo Kebab er að taka á sig mynd og styttist nú í opnun staðarins sem verður staðsettur í Hafnarstræti 103.
Hans hefur verið beðið með töluverðri eftirvæntingu en það er Khattab Almohammad, flóttamaður frá Sýrlandi sem er maðurinn á bak við þennan nýja veitingastað sem mun auka fjölbreytni við matarflóru Akureyringa.
Auk þess að bjóða upp á sýrlenskan mat verða til sölu á svokallaðar shishavatnspípur sem einnig eru stundum kallaðar hookah.
UMMÆLI